Deloitte verður samstarfsaðili FKA um Jafnvægisvog:

Img_0976-3-Deloitte hefur skrifað undir samning við Félag kvenna í atvinnulífinu um samstarf í hreyfiaflsverkefninu Jafnvægisvoginni sem formlega fór af stað í síðasta mánuði. Deloitte mun taka  saman heildræn gögn á stöðu jafnréttis meðal stjórnenda í íslensku atvinnulífi. Að verkefninu standa auk FKA  og Deloitte velferðarráðuneytið,  Morgunblaðið og Pipar TBWA.  Markmið Jafnvægisvogarinnar er að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi.
Deloitte hefur um árabil lagt áherslu á jafnréttismál og hefur fyrirtækið verið með jafnlaunastefnu frá árinu 1999. Fyrsta jafnlaunavottunin var í höfn árið 2013 og eru kynjahlutföll mikilvægur þáttur í öllum þeirra ferlum, þar með talið í ráðningarferlum.
 „Við höfum náð jöfnum kynjahlutföllum Jafnvægisvogar í framkvæmdaráði og stjórn og höfum lagt mikla áherslu á að búa til sterkar kvenfyrirmyndir með því að efla sérstaklega kvenstjórnendur.  Við erum afskaplega ánægð með að hafa fengið þetta tækifæri til að vinna með FKA að þessu þjóðþrifa verkefni. Okkar starfsemi byggir í heild sinni á mannauði, þ.e. hugviti og metnaði okkar sérfræðinga. Fjölbreyttni í þekkingu, reynslu og viðhorfum er því sérstaklega mikilvæg en þar eru jafnréttismál lykilatriði. Við höfum t.a.m. lagt mikið upp úr því að kynjahlutföll þeirra sem fara í löggildingarpróf séu sem jöfnust,” segir Sigurður Páll Hauksson, forstjóri Deloitte.
 „Fyrsta verkefni Jafnvægisvogarinnar er að taka saman heildræna stöðu jafnréttis meðal stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöðurnar og er sú vinna hafin.  Að því búnu er mögulegt að kortleggja aðgerðir. Við viljum hvetja stjórnendur fyrirtækja á Íslandi til þess að skrifa undir viljayfirlýsingu um að hefja þessa vegferð með okkur og vinna að jöfnum tækifærum kynjanna. Takið frá 31. október því þá verður ráðstefna þar sem niðurstöður verða kynntar og fyrirmyndarfyrirtæki kynna aðgerðir,” segir Guðrún Ragnarsdóttir, stjórnarkona FKA og talsmaður Jafnvægisvogarinnar. 
Fyrirhugað er að veita Jafnvægisvogarmerkið á öðru ári og með því verða dregin fram í sviðljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar eftir þeim mælikvörðum sem verða skilgreindir. Það er því til mikils að vinna.