28. janúar 2021
Fida Abu Libdeh framkvæmdastjóri GeoSilica og FKA Hvatningarviðurkenningin 2021.
Innilega til hamingju!
Fida Abu Libdeh framkvæmdastjóri GeoSilica og FKA Hvatningarviðurkenningin 2021.
Viðurkenningarhátíð FKA 2021 var með öðru sniði en áður og var sýnd á Hringbraut í kvöld, miðvikudaginn 27. janúar 2021.
Veittar eru viðurkenningar til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd. Það var Fida Abu Libdeh framkvæmdastjóri GeoSilica sem hlaut FKA Hvatningarviðurkenninguna 2021.
FKA viðurkenningin er veitt í þremur flokkum:
FKA viðurkenning
Viðurkenning fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.
FKA þakkarviðurkenning
Þakkarviðurkenningin er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.
FKA hvatningarviðurkenning
Hvatningarviðurkenningin er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði.


#GeoSilica @Fida Abdu Libdeh #fka