FKA heiðrar Margréti Kristmannsdóttur, Sigríði Snævarr og Helgu
Valfells
FKA, Félag kvenna í
atvinnulífinu, afhenti í dag sínar árlegu viðurkenningar í Gamla
bíó að viðstöddu fullu húsi og fjölda þeirra karla og kvenna sem standa í
framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs. Viðurkenningar FKA hafa verið veittar frá
stofnun félagsins árið 1999 og fagnar félagið 20 ára starfsafmæli á árinu.
Margrét
Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, hlaut FKA
Viðurkenninguna. Sigríður
Snævarr sendiherra fékk Þakkarviðurkenningu FKA og Helga Valfells, framkvæmdastjóri Crowberry Capital,
Hvatningarviðurkenningu FKA.
Sannkölluð
hátíðarstemning var í Gamla bíó þar sem þær þrjár voru heiðraðar fyrir
eftirtektarverð störf þeirra og framlag í atvinnulífinu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra veitti viðurkenningarnar ásamt formanni FKA, Rakel
Sveinsdóttur.
„Við erum svo
rík af mannauði og krafti íslenskra kvenna og þær Margrét, Sigríður og Helga,
sem FKA heiðraði í dag, standa svo sannarlega undir því nafni að vera okkur
hinum miklar fyrirmyndir. Ég óska þeim og aðstandendum þeirra innilega til
hamingju með daginn og þakka fráfarandi dómnefnd fyrir þeirra störf,“ segir Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA.
FKA viðurkenninguna 2019
hlaut Margrét Kristmannsdóttir
Margrét Kristmannsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri PFAFF í 25 ár. Hún
situr einnig í stjórn BL, Rekstrarfélag Kringlunnar og Bankasýslu ríkisins.
Margrét hefur lengi verið meðal helstu leiðtoga í atvinnulífinu, sat í
stjórn Félags atvinnurekenda á árunum 1999-2008, er fyrrum formaður FKA til
fjögurra ára og sat í stjórninni á árunum 2002-2009. Hún var formaður Samtaka
verslunar og þjónustu um fimm ára skeið til ársins 2014. Á sama tíma sat hún í
framkvæmdastjórn og stjórn Samtaka atvinnulífsins, síðast sem varaformaður.
PFAFF fagnar 90 afmæli á árinu og er eitt elsta fjölskyldufyrirtæki
landsins en afi Margrétar stofnaði fyrirtækið árið 1929. Pfaff hefur frá
upphafi fengið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki en
einungis um 75 fyrirtæki á Íslandi hafa hlotið þann heiður.
Margrét er með MBA gráðu frá Stetson University. Hún lauk námi í
Viðskiptafræði við HÍ eftir stúdentspróf frá Verslunarskóla Íslands.
Í umsögn dómnefndar kemur m.a.
fram: „Margrét hefur gegnt ábyrgðamiklu hlutverki í íslensku atvinnulífi í
áratugi, bæði í eigin atvinnurekstri og með eftirtektarverðri þátttöku sinni í
hinum ýmsu stjórnar- og félagsstörfum. Margrét hefur einnig lagt mikilvægt
framlag til jafnréttismála og verið konum einstök hvatning og fyrirmynd.“
Hvatningarviðurkenningu FKA
2019 hlaut Helga Valfells
Helga Valfells er
framkvæmdastjóri og meðstofnandi Crowberry Capital. Hún kom að stofnun
Samtaka íslenskra framtaksfjárfesta árið 2018 og er stjórnarformaður
félagsins. Hún er varaformaður stjórnar Íslandsbanka og Símans.
Crowberry Capital, sem hún
stofnaði með Heklu Arnardóttur og Jennýju Ruth Hrafnsdóttur um mitt ár 2017,
er nýsköpunarsjóður sem fjárfestir í ungum tækni- og
þekkingarfyrirtækjum sem hyggja á vöxt á alþjóðamörkuðum. Crowberry hefur
fjárfest í sex fyrirtækjum og er með áform um að fjárfesta í alls 10 til 15.
Hluthafar í Crowberry eru lífeyrissjóðir og einkafjárfestar.
Helga var áður framkvæmdastjóri
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins (NSA), og Stjórnarformaður Frumtaks frá árinu
2010 til 2016. Hjá NSA starfaði Helga með yfir 50
tæknifyrirtækjum. Hún hefur verið virkur þátttakandi í íslensku
nýsköpunarumhverfi frá aldamótum og setið í stjórn 16
nýsköpunarfyrirtækja.
Helga starfaði erlendis í um
áratug og vann þá m.a. fyrir Estée Lauder UK, Merrill Lynch og Alþjóða
Rauða krossinn. Hérlendis hefur Helga einnig unnið hjá
Útflutningsráði Íslands, Íslandsbanka og verið aðstoðarmaður
viðskiptaráðherra.
Helga er með B.A. gráðu frá
Harvard University og MBA gráðu frá London Business School.
Í umsögn dómnefndar kemur m.a. fram: „Helga hefur látið til sín taka í íslensku
nýsköpunarumhverfi með eftirtektarverðum hætti en hún var áður framkvæmdastjóri
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins en stofnaði árið 2017 framtakssjóðinn Crowberry
Capital ásamt Heklu Arnardóttur og Jenny Ruth Hrafnsdóttur. Nýlega átti hún
jafnframt þátt í því að koma á fót evrópsku félagi kvenna í
framtaksfjárfestingum. Helga hefur í gegnum margvísleg störf sín verið konum
mikil hvatning.“
Þakkarviðurkenningu FKA 2019 hlaut Sigríður Ásdís
Snævarr
Sigríður Snævarr hefur gegnt
sendiherrastöðu í 28 ár og hefur hún frá 2017 veitt deild heimabúsettra
sendiherra forstöðu og er nú sendiherra gagnvart Páfagarði, Singapúr og
Ástralíu. Hún varð fyrst íslenskra kvenna til að gegna sendiherrastöðu þegar
hún var skipuð sendiherra í Stokkhólmi árið 1991. Sigríður hefur helgað
diplómatastarfinu líf sitt. Reynsla hennar og þekking hafa gert hana að
vinsælum ræðumanni. Fjörutíu ár eru síðan hún var ráðin í utanríkisráðuneytið
og er sérstakt áhugasvið hennar símenntun, nýsköpun og umbreyting
atvinnulífsins inn í alþjóðageirann.
Hún stofnaði ásamt Maríu Björk
Óskarsdóttur fyrirtækið Nýttu kraftinn árið 2008 í leyfi frá
utanríkisþjónustunni. Á þeim fimm árum sem þær störfuðu saman nýttu sér 1.100
atvinnuleitendur þjónustu þeirra auk þess sem þær gáfu út bókina Nýttu
kraftinn 2013.
Sigríður er með meistaragráðu frá
Fletcher School of Law and Diplomacy í Boston. Áður hafði hún útskrifast sem
BscEcon frá London School of Economics, en fyrsta árið eftir stúdentspróf
stundaði hún ítölsku nám í háskólanum í Perugia.
Í umsögn dómnefndar kom m.a. fram: „Sigríður braut blað í sögu
Íslands árið 1991 þegar hún var skipuð fyrsti íslenski kvensendiherrann, en hún
á að baki fjörutíu ára farsælan feril í utanríkisráðuneytinu. Á einstökum
ferli, bæði í stjórnsýslu og atvinnulífi, hefur hún helgað sig því að
gæta hagsmuna lands og þjóðar og leita tækifæra fyrir Ísland á alþjóðlegri
grundu.“
Dómnefnd 2019 skipaði
fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu en yfir 100 tilnefningar bárust til
félagsins.
- Hafdís
Jónsdóttir, fyrrum formaður FKA og forstjóri Laugar Spa - Anna
Þóra Ísfold, stjórnarkona FKA og sölustjóri Heilsuborgar - Salóme
Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups - Hrund
Rudólfsdóttir, forstjóri Veritas - Sigurður
Brynjar Pálsson, Forstjóri BYKO - Ari
Kristinn Jónsson, Rektor HR - Sæmundur
Sæmundsson, Forstjóri Borgun