FKA og RÚV starfa saman að viðmælendaþjálfun fyrir konur

FKA og RÚV
starfa saman að viðmælendaþjálfun fyrir konur

2A7A5227

RÚV og FKA hafa undirritað samstarf
um verkefni sem ætlað er að auka fjölbreytni viðmælenda í íslenskum fjölmiðlum. 

Framtakið felur í sér að FKA mun auglýsa eftir konum vítt og breitt úr
samfélaginu sem áhuga hafa á þjálfun í að miðla sinni sérþekkingu í
fjölmiðlaviðtölum. Árlega næstu þrjú árin verður svo haldið hagnýtt námskeið í
húsakynnum RÚV þar sem þátttakendur fá leiðsögn og tækifæri til að spreyta sig
sem viðmælendur við raunverulegar aðstæður í útvarpi og sjónvarpi. Nefnd FKA
velur fjölbreyttan hóp kvenna til að taka þátt og leggur til reynda kennara til
verksins.

Magnús Geir Þórðarson:

Jafnrétti er alger
undirstaða í dagskrá og starfsemi RÚV. Frá upphafi árs 2016 hefur verið haldið
nákvæmt kynjabókhald yfir dagskrá RÚV og við erum stolt af því að algert
jafnvægi er á milli kynja í hópi viðmælenda í dagskrá RÚV. Á hinn bóginn er enn
nokkuð í að jafnvægi náist meðal viðmælenda í fréttum þó bilið hafi minnkað hjá
RÚV á undanförnum árum, það er nú 63% karlar og 37% konur. Og þó RÚV skeri sig frá flestum öðrum miðlum
hérlendis og erlendis hvað þetta varðar þá viljum við halda áfram að gera
betur,“ sagði Magnús Geir Þórðarson við það tækifæri.

RÚV hefur áður staðið fyrir ýmsum
aðgerðum til að efla þátttöku kvenna í fjölmiðlum, m.a. námskeið í
íþróttafréttamennsku fyrir konur, námskeið í spurningatækni fyrir Gettu betur.
Verkefnið nú er að hluta byggt á breskri fyrirmynd frá BBC, breska
ríkisútvarpinu, BBC Expert Women.

Rakel Sveinsdóttir:

„Fjölmiðlaverkefni FKA hefur staðið
yfir frá 2013 og á þeim tíma höfum við séð mikla breytingu á viðhorfi og áhuga
fjölmiðla að auka ásýnd kvenna sem viðmælendur í öllum málum. Þetta verkefni er
frábært að því leyti að það gagnast ekki aðeins þeim konum sem taka þátt,
heldur öllum fjölmiðlum og fjölmiðlaneytendum á Íslandi.“