Hlekkur fyrir Landsbyggðarráðstefnu FKA sem ber yfirskriftina Eldhugar og er opin almenningi.
Eldhugar – sögur af sigrum og áskorunum á Akureyri 23. september nk.

Ríkidæmi landsbyggðarinnar verður rætt á ráðstefnu Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, á opinni Landsbyggðarráðstefnu FKA sem haldin verður á Akureyri að þessu sinni.
Ráðstefnan ber nafnið Eldhugar en fyrirlesarar verða konur af öllu landinu sem hafa hugrekki og víðsýni að vopni og hafa náð að töfra fram spennandi nýsköpun og tækifæri.
Við fáum að heyra sögur af sigrum og áskorunum, fáum tæki til að efla tengslin og láta til okkar taka á spennandi tímum þar sem ólíkar raddir og skapandi nálganir um mikilvæg viðfangsefni samtímans.
Landsbyggðarráðstefna FKA, sem verður þann 23. september nk. í Háskólanum á Akureyri kl. 15, er opin almenningi.
Að ráðstefnu lokinni heldur dagskrá áfram fyrir félagskonur FKA með kvöldverði og tengslamyndun. Á laugardeginum verður farið í fyrirtækjaheimsóknir til öflugra félagskvenna á Norðurlandi, Skógarböðin heimsótt og konur af landinu öllu sameinast í höfuðstað Norðurlands til að upplifa orkuna sem gustar þar af konum, eiga samtalið og stilla saman strengi.
,,Það er svo margt gott að gerast staðbundið um land allt þar sem öflugir einstaklingar af öllum kynjum eru að ryðja brautir og það er bæði gaman að vekja athygli á því sem vel er gert en einnig að láta vita af sér um land allt. Það er mikilvægt að skapa nýtt en líka kynna það sem til er og átta okkur á að við getum öll haft áhrif á þróun mála í stóru og smáu. Mörg okkar sinna vinnu og verkefnum frá eldhúsborðinu,“ segir Jóhanna Hildur Ágústsdóttir eigandi Matlifunar og formaður FKA á Norðurlandi.
Almenningur er hvattur til að mæta í Háskólann á Akureyri 23. september kl. 15 eða nýta sér streymi ráðstefnunnar.
Skráning fer fram hér og verður hlekkur sendur á einstaklinga sem skrá sig.
Nánari upplýsingar:
Jóhanna Hildur Ágústsdóttir eigandi Matlifunar og formaður FKA á Norðurlandi.
johannagusta@gmail.com // s. 8655696

Fyrirlesara:
Andrea Eyland eigandi Kviknar/Kambey
Agnes Anna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Bruggmiðjunar Kalda
Anna Björk Theodórsdóttir stofnandi Oceans
Karen Jónsdóttir framkvæmdastjóri Kaja Organic
Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri Chito Care
Kristrún Lind Birgisdóttir Eigandi og stofnandi Ásgarðs og Skóla í skýjunum
#hreyfiafl #fka #sýnileiki #tengslanet #FKAkonur Jóhanna Hildur Ágústsdóttir #FKANorðurland @Sif Jónsdottir @Aðalbjörg Kristín Snorradóttir Ingibjörg Þórðardóttir#Akureyri#HáskólinnáAkureyriAndrea Róberts @Andrea Eyland #Kviknar#Kambey @Agnes Anna Sigurðardóttir #BruggmiðjunarKalda Anna Björk Theodórsdóttir #Oceans @Karen Jónsdóttir #KajaOrganicSigríður Vigdís Vigfúsdóttir #ChitoCare @Kristrun Lind Birgisdottir #Ásgarður #Skóliískýjunum