Hulda Ragnheiður Árnadóttir er nýr formaður FKA

FKA-19-05-15-14740

Hulda Ragnheiður var kosin formaður FKA á einum fjölmennasta
aðalfundi félagsins sem haldin var í húsakynnum deCODE genetics, 15. maí.  

Í framboði til formanns var einnig Rakel Sveinsdóttir, fyrrum formaður FKA sem
sóttist eftir endurkjöri. Rakel Sveinsdóttir hlaut 144 atkvæði og Hulda
Ragnheiður Árnadóttir hlaut 182 atkvæði.

Í framboði til stjórnar voru sjö konur um þrjú sæti til
tveggja ára og tvo sæti til eins árs.
Kosnar voru í stjórn til tveggja ára:
Sigríður Hrund Pétursdóttir, Ragnheiður Aradóttir og Áslaug Gunnlaugsdóttir.
Til eins árs voru kosnar Hulda Bjarnadóttir
og Margrét Jónsdóttir Njarðvík. Að auki situr Lilja Bjarnadóttir í stjórn, en
hún var kjörin til tveggja ára árið 2018.

Fyrrum formanni FKA, Rakel Sveinsdóttur og fráfarandi
stjórnarkonum, Önnu Þóru Ísfold og Guðrúnu Ragnarsdóttur er þakkað fyrir stjórnarstörf og allt þeirra framlag til félagsins. 

Hulda Ragnheiður Árnadóttir:

„Ég er mjög þakklát fyrir þann
stuðning sem ég fékk frá félagskonum. Það
verður spennandi að takast á við krefjandi verkefni í samstarfi við þær öflugu
konur sem gefið hafa kost á sér til starfa í nefndum, deildum og stjórn
félagsins. Ég hlakka til að fá tækifæri til að virkja enn fleiri konur til
þátttöku, bæði í núverandi verkefnum og þeim verkefnum sem kynnt verða til
leiks þegar nýtt starfsár hefst.“

Stjórn FKA 2019 – 2020

FKA-19-05-15-14742Áslaug Gunnlaugsdóttir, Ragnheiður Aradóttir, Hulda
Ragnheiður Árnadóttir, Lilja Bjarnadóttir, Sigríður Hrund Pétursdóttir en á
myndina vantar Huldu Bjarnadóttur  sem og Margréti Jónsdóttir
Njarðvík.