Íslenska ánægjuvogin afhent í sextánda sinn

Frétt af vef Stjórnvísis. 

Mikil stemning ríkti þegar niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2014 voru kynntar og er þetta sextánda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 19 fyrirtæki í 6 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á 297-1210 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. 

Líkt og á síðasta ári er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en þess með næst hæstu einkunnina. Í ár var því afhent viðurkenning í þremur flokkum; tryggingamarkaði þar sem TM fékk viðurkenningu með 71,3 stig af 100 mögulegum, farsímamarkaði þar sem Nova var með marktækt hæstu einkunnina, 73,6 stig og í raforkusölumarkaði þar sem HS orka var með marktækt hæstu einkunn eða 62 stig. Á þeim mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti voru efstu fyrirtækjum ekki veittar viðurkenningar en hins vegar var fulltrúum þessara fyrirtækja veittur blómvöndur í viðurkenningarskyni.

Þeir markaðir þar sem marktækur munur var ekki til staðar voru bankar, og eldsneytisfélög. Þá var ekki marktækur munur á ÁTVR sem var með hæstu einkunnina á heildina litið og Nova sem var með næsthæstu einkunnina.

Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá á  – SMELLTU HÉR 

Hér má sjá myndir af hátíðinni –
SMELLTU HÉR