Jafnvægisvogin

Fréttatilkynning
frá FKA um Jafnvægisvog

Árið 2027 verði hlutfall
kynja í framkvæmdastjórnum 40/60

Félag kvenna í
atvinnulífinu hefur ásamt samstarfsaðilum úr Velferðarráðuneytinu og viðskipta-lífinu
sett af stað hreyfiaflsverkefnið Jafnvægisvogina. Markmið Jafnvægisvogarinnar
er að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja 40/60 í framkvæmdastjórnum
fyrirtækja á Íslandi.

„Fyrirtæki sem ekki ráða konur í stjórnunarstöður missa einfaldlega af
gríðarlegum mannauði, menntun og reynslu. Lög um kynjakvóta í stjórnum
fyrirtækja sem ná til fyrirtækja með 50 starfs-menn eða fleiri hafa ekki veitt
konum á Íslandi aukin völd innan stjórna fyrirtækjanna. Jafnvægisvogin er eitt
af hreyfiaflsverkefnum FKA og eru samstarfsaðilar okkar Velferðarráðuneytið,
Sjóvá, Deloitte og Morgunblaðið, auk þess sem Pipar hannaði nýtt merki
Jafnvægisvogar,” segir Guðrún Ragnarsdóttir, stjórnarkona FKA og talsmaður
Jafnvægisvogarinnar.

Markmið Jafnvægisvogarinnar er að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja
40/60 í framkvæmda-stjórnum fyrirtækja á Íslandi. Mótuð hefur verið fimm ára
framkvæmdaáætlun til að styðja við þetta markmið en tilgangur verkefnisins er
eftirfarandi:

1.      
Að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku
viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja
40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi.

2.      
Að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd
jafnréttis fyrir aðrar þjóðir.

3.      
Að veita viðurkenningar og draga fram í sviðljósið
fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar.

4.      
Að standa fyrir viðburðum og fræðslu og vekja samfélagið
til hugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis.

5.      
Að taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á
stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöður.

Á öðru ári verður Jafnvægisvogarmerkið veitt og með því
verða dregin fram í sviðljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum
Jafnvægisvogarinnar eftir þeim mælikvörðum sem við munum skilgreina. Konur eru
67% útskrifaðra háskólanema en einungis 11% forstjóra – eftir því sem
fyrirtækin eru stærri fækkar konum í framkvæmdastjórastöðum. Þessar upplýsingar
er meðal annars allar að finna í skýrslu félags- og jafnréttismálaráðherra
2015-2017 sem gefin var út fyrir Jafnréttisþing í upphafi árs. Þar kemur einnig
í ljós að hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna var einungis 23,9% í lok árs
2016 sem er afturför. Þessu þarf að breyta.