Karkynsviðmælendur þrefalt fleiri en kvenkynsviðmælendur í fréttum

Fréttatilkynning 5. nóvember 2013

Karkynsviðmælendur þrefalt fleiri en kvenkynsviðmælendur í fréttum


Fjölmiðlaverkefni FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, var formlega fylgt úr hlaði í morgun með kynningu á niðurstöðum mælinga Creditinfo um viðmælendur í fréttum.  Þar sem fyrir lá áhersla á að skoða kynjahlutfall viðmælenda í helstu fréttum og þjóðfélagsumræðu, einskorðaðist þessa fyrsta könnun við ljósvakamiðla.  

Helstu niðurstöður voru þær að þrátt fyrir jákvæða þróun séu hlutfall viðmælanda í ljósvakaþáttum og fréttum 70% karlkynsviðmælenda gegn 30% kvenkynsviðmælenda á tímabilinu 1. febrúar 2009 til 30. ágúst 2013. Heildarfjöldi viðmælenda var yfir 100.000.

Hér má nálgast kynningu CreditInfo – SMELLTU HÉR

Þá eru að að meðaltali um það bil tvöfalt fleiri karlkyns viðmælendur í spjallþáttum ljósvakamiðlanna á sama tímabili og viðmælendur í ljósvakafréttum eru að meðaltali um það bil þrefalt fleiri karlkyns viðmælendur. Konur virðast vera meira áberandi í spjallþáttum ljósvakamiðlanna en í fréttum. Niðurstöður mælinga Creditinfo má nálgast í viðhengi.

Fjölmiðlaverkefni FKA lýkur formlega haustið 2017 oger markmið þess að auka ásýnd kvenna í fjölmiðlum. Um leið og birtar verða úttektir Creditinfo á stöðu kynjanna og þróuninni á tímabilinu og verkefnið verður unnið í samstarfi við ólíka hagsmunahópa og fræðasamfélagið.

Á tímabilinu mun lögð áhersla á að koma kvenkynsstjórnendum- og sérfræðingum í atvinnulífinu á framfæri í fjölmiðlum og ekki síður að aðstoða fjölmiðlana að nálgast þær rúmlega 300 félagskonur úr atvinnulífinu sem gefa kost á sér í fjölmiðlaviðtöl. Fjölmiðlar geta nálgast þær áwww.fka.is með því að fara inn á félagatalið og slá inn æskilegt sérsvið undir „Eftir leitarorði“. Félagskonur verða nú hvattar í einn meira mæli til að merkja sig og sína sérþekkingu vel til að auðvelda leit.

Ítarlegri upplýsingar veita: 

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður FKA, s.863-1136
Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Spyr.is og verkefnisstjóri fjölmiðlaverkefnisins, s. 822 0866
Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri FKA, s. 897 0711