Konur 32 prósent stjórnarmanna en karlar 68 prósent skv úttekt Kjarnans

Af 982 stjórnarmönnum í 270 stærstu fyrirtækjum landsins, eru 665 karlar og 317 konur. Meðalaldur karlanna í stjórn er tæplega 55 ár en kvennanna um 50 ár. Þetta þýðir að konur eru 32 prósent stjórnmanna í stærstu fyrirtækjum landsins, en karlar 68 prósent. 

Þetta sýna upplýsingar sem Kjarninn tók saman úr gagnagrunni upplýsinga um íslenskt atvinnulíf, sem Keldan er með á vef sínum

Dæmigerður íslenskur stjórnarmaður í íslensku atvinnulífi er karlmaður á sextugsaldri, en staða kvenna hefur þó batnað hratt frá fyrri árum, einkum og sér í lagi eftir að lögfest var að konur þyrftu að vera að lágmarki 40 prósent stjórnarmanna. Nokkuð er í að það hlutfall náist, sé mið tekið af framangreindum upplýsingum, sem koma úr nýjustu ársreikningum fyrirtækjanna.

FRÉTT KJARNANS – SMELLTU HÉR