Konum hefur fjölgað mikið í stjórnum stærri fyrirtækja undanfarin ár. Árið 2014 voru konur þriðjungur stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri, til samanburðar við 12,7% árið 2007 og 9,5% árið 1999. Árið 2010 voru samþykkt lög um að hlutfall hvors kyns skyldi vera yfir 40% í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn, og tóku þau að fullu gildi í september 2013. Hlutfall kynja í stjórnum fyrirtækja með færri en 50 starfsmenn hefur lítið breyst á síðustu árum, en þau eru tæp 98% af fjölda fyrirtækja sem greiða laun.
Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra hækkaði lítillega frá fyrra ári, úr 21,4% í 21,6%, sem heldur áfram hægfara aukningu sem sjá má allt frá 1999, eða allan þann tíma sem gögn liggja fyrir. Hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna var 23,8% í lok árs 2014, sem er svipað og hefur verið undanfarin ár. Nánari upplýsingar um hlutfall stjórnarmanna, stjórnarformanna og framkvæmdastjóra starfandi fyrirtækja eftir stærð og atvinnugreinum er að finna á vef Hagstofunnar.
SMELLTU HÉR til að fara á frétt/vef Hagstofunnar.