LOKAÚTKALL – Óskað er eftir áliti félagskvenna um lagabreytingar fyrir aðalfund.

Kæra félagskona FKA! 
Stjórn FKA óskaði nýverið eftir áliti félagskvenna FKA á fyrirhuguðum lagabreytingum og hvatti félagskonur jafnframt til að setja fram tillögur um aðrar breytingar sem þær telja að gera má á lögum félagins.
Hér að neðan verður gerð grein fyrir tillögum stjórnar sem óskað er álits félagskvenna á.  
Stjórn hefur einnig unnið tillögur að reglum um nefndir FKA sem fyrirhugað er að leggja fram til samþykktar á rafrænum aðalfundi FKA 2020 þann 10. júní nk. klukkan 17.  

Drög að reglum fyrir starfsnefndir Félags kvenna atvinnulífinu „Reglur til umsagnar – ósamþykktar“ má finna HÉR. 

Við viljum að félagskonur fái tækifæri til að hafa áhrif á umgjörð um starfsemi félagsins eins og kostur er og höfum því ákveðið að veita frest til að koma með ábendingar til og með 2. júní 2020. Ábendingar sendist á fka@fka.is.  

Stjórn FKA óskar eftir áliti félagskvenna FKA á fyrirhuguðum lagabreytingum. Annars vegar er gerð grein fyrir núverandi ákvæði laganna og hins vegar er gerð grein fyrir tillögu stjórnar til breytinga. 

Sjá lög HÉR.  

Tillögur um lagabreytingar FKA má sjá HÉR (ath. 2 bls).
 
Þess er óskað að félagskonur sendi álit sitt á netfangið fka@fka.is til og með 2. júní nk.
 
Með hlýjum kveðjum,
Stjórn FKA