MIA sigraði frumkvöðlakeppni kvenna

MIA sigraði frumkvöðlakeppni kvenna sem Íslandsbanki, FKA og Opni háskólinn í HR stóðu fyrir. Bylgja Bára Bragadóttir og Álfheiður Eva Óladóttir standa að baki hugmyndinni sem felst í framleiðslu á fljótandi sápum og froðusápum. 

Þetta er í annað sinn sem frumkvöðlakeppnin er haldin en lista- og hönnunarstúdíóið Volki bar þá sigur úr býtum. Námskeið í gerð viðskiptaáætlana hófst í janúar og niðurgreiddi Íslandsbanki námskeiðagjaldið um helming. Alls sóttu 70 konur með 55 viðskiptahugmyndir um að sitja námskeiðið en 35 sæti voru í boði. Út úr námskeiðinu komu 26 viðskiptaáætlanir sem dómnefnd fór yfir. Fimm áætlanir voru valdar til að taka þátt í frumkvöðlasamkeppninni þar sem konurnar fengu ráðgjöf til að þróa áætlunina enn frekar. Dómnefndina skipuðu þau Guðmundur Ingi Jónsson, fjárfestir og stjórnarformaður GreenQloud, Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri FKA og Þóranna Jónsdóttir, deildarforseti Viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. 

Verðlaunin voru afhend í útibúi Íslandsbanka á Kirkjusandi nú síðdegis en vinningshafinn hlaut tveggja milljóna króna styrk frá Íslandsbanka. Í rökstuðningi dómnefndar kom fram að MIA hafi verið með vel útfærða viðskiptahugmynd sem var fagmannlega framsett og kynnt. Greiningarvinna hafi verið góð og viðskiptáætlunin því raunhæf í alla staði. Bylgja Bára og Álfheiður Eva hafa sýnt mikið frumkvæði og þróað íslenska afurð sem hefur alla burði til að taka þátt í samkeppni á alþjóðamarkaði.