#metoo:
Hvetjum konur til að klæðast svörtu 31.janúar 2018
Stjórn FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, hvetur allar
konur í íslensku atvinnulífi til að klæðast svörtu miðvikudaginn 31.janúar nk.
Með þessu er markmiðið að konur sýni samstöðu sína og stuðning við #metoo
byltinguna.
Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA: ,,Nú þegar hefur
fjöldinn allur af hugrökkum konum stigið fram með sínar sögur. Þetta eru konur
á öllum sviðum atvinnulífs,ins á öllum aldri og alls staðar af á landinu. Engin
þessara kvenna stendur ein í sinni baráttu því að í #metoo stöndum við konurnar
saman sem ein heild. Og í þetta sinn þarf samfélagið að skilja að okkur
er full alvara með að hér muni ná fram að ganga, varanlegar breytingar í
viðhorfum og valdbeitingu. Þess vegna klæðumst við konurnar svörtu þann
31.janúar næstkomandi.”
Viðurkenningarhátíð FKA verður haldin 31.janúar en þetta er
stærsti viðburður FKA á hverju ári. Með því að velja þennan dag vill stjórn FKA
undirstrika hversu mikilvægt það er að #metoo byltingunni verði fylgt eftir í
orði, í verki og af þeirri virðingu sem hún á skilið.
Nánari
upplýsingar veita undirritaðar.
Rakel
Sveinsdóttir, formaður FKA, gsm 822-0866, netfang rakel@spyr.is
Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, gsm 896-7566, netfang hrafnhildur@fka.is