Staða verkefnastjóra Jafnvægisvogar FKA laus til umsóknar
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi með forsætisráðuneytinu, Sjóvá, Deloitte, Morgunblaðinu og PiparTBWA.
Hlutverk verkefnisstjóra Jafnvægisvogarinnar er að halda utan um alla þætti verkefnisins í nánu samstarfi við Jafnvægisvogarráð (JVR), framkvæmdastjóra FKA og stjórn FKA.
Starfið er lifandi og fjölbreytt. Starf fyrir árangursdrifna manneskju með hæfni í mannlegum samskiptum sem hefur jafnréttissjónarmið að leiðarljósi.
Stefnu, markmiðum og áætlunum FKA, jafnt faglega sem fjárhagslega, er fylgt sama hvar ber niður.
Umsókn skal senda á netfangið fka@fka.is og fylgja náms- og starfsferilskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Vakin er athygli á að ráðstefna Jafnvægisvogar er áætluð 14. október 2020.
Nánari upplýsingar: fka@fka.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2020
STARFSLÝSING HÉR!