Umhverfisverðlaun atvinnulífsins. Óskað eftir tilnefningum. FKA-konan Aðalheiður Jacobsen og Netpartar með Framtak ársins.

Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög óska eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins fyrir 8. september. Verðlaunin eru veitt af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á Umhverfisdegi atvinnulífsins 6. október í Hörpu.

HÉR má sjá Framtak ársins 2020 en það er FKA-konan og stjórnarkona Atvinnurekendadeildar FKA Aðalheiður Jacobsen og Netpartar.

Dómnefnd velur úr tilnefningum sem berast í tölvupósti á sa@sa.is merktum „Tilnefning til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins“. Veitt eru tvenn verðlaun; umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins. Athugið að einungis er hægt að tilnefna skráða félagsmenn Samtaka atvinnulífsins til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins.

Tilnefna HÉR

Netpartar framtak ársins 2020 í umhverfismálum – myndband HÉR

Aðalheiður Jacobsen.

Dæmi um þætti sem vera til skoðunar í ferlinu:

Umhverfisfyrirtæki ársins

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
  • Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
  • Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
  • Innra umhverfi er öruggt
  • Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið

Framtak ársins

  • Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
  • Hefur komið fram með nýjung – vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

#hreyfiafl #fka #sýnileiki #tengslanet #Atvinnurekendadeild #AFKA #Netpartar @Aðalheiður Jacobsen