Velunnarar FKA

Kæru FKA konur.

Undanfarin ár hefur starfsemi FKA eflst til muna og með fjölgun félagskvenna verður starfsemin fjölbreyttari og umfangsmeiri um leið.

Á 15 ára afmælinu býður stjórn FKA félagskonum og fyrirtækjum þeirra að taka þátt með beinum hætti í uppbyggingu á félaginu, styrkja það og styðja enn frekar.

Við kynnum nýtt fyrirkomulag til sögunnar: Velunnara FKA.

Með þátttöku geta félagskonur og fyrirtæki þeirra náð á áhrifaríkan hátt til sterks markhóps, sýnt stuðning í verki og stuðlað í leiðinni að því að efla félagið. 

Með þátttöku er félagið styrkt með beinum hætti og um leið eykur fyrirtækið sýnileika sinn innan sem utan félagsins.

Hér eru nánari upplýsingar um velunnarakerfið okkar.  Á næstunni fylgjum við þessu eftir með fundum með þeim sem þess óska og í lok október munum við ljúka þessari vinnu formlega.

Við vonumst til að fá sterka bakhjarla til liðs við okkur á komandi misserum en hingað til höfum við notið mikillar velvildar og stuðnings frá Íslandsbanka sem við erum afar þakklátar fyrir.


Viltu gerast velunnari – SMELLTU HÉR

f.h. stjórnar FKA
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Formaður