Viðurkenningarhátíð FKA 2023 – Opnað hefur verið fyrir tilnefningar. Hafðu áhrif á val á FKA viðurkenningarhöfum.

FKA kallar eftir tilnefningum frá almenningi og atvinnulífinu sem dómnefnd mun meta og á endanum velja konur sem hljóta FKA þakkarviðurkenningu, FKA viðurkenningu og FKA hvatningarviðurkenningu.

Tilnefna HÉR

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2023. Hægt er að tilnefna konur í öllum flokkum eða bara eina til og með 24. nóvember 2022.

Félag kvenna í atvinnulífinu heldur markvisst áfram að skrifa konur inní söguna.

FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega við hátíðlega athöfn þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. Að vanda verða veittar viðurkenningar á hátíðinni til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd.

Dómnefnd skipuð sjö aðilum fer yfir allar tilnefningar og verða úrslit kynnt á stórglæsilegri Viðurkenningarhátíð FKA þann 26. janúar 2023 á Grand Hótel Reykjavík.

Hér að neðan má sjá lista yfir viðurkenningarhafa síðustu ára – frá upphafi.

Hvað eiga þær Guðbjörg í Marel, Edda Sif hjá Carbfix og Bryndís Brynjólfsdóttir í Lindinni á Selfossi sameiginlegt?


Mikilvægt er fyrir komandi kynslóðir að hafa fjölbreyttar fyrirmyndir til að máta sig við og konur sem hafa verið heiðraðar á Viðurkenningarhátíð FKA gegnum tíðina hafa verið sérstök hvatning og fyrirmyndir. Líkt og Guðbjörg Heiða, Edda Sif og Bryndís, svo dæmi séu tekin, eru konur sem hafa rutt brautir og sýnt athyglisvert frumkvæði og átt að baki eftirtektarvert ævistarf. Um er að ræða fjölbreyttan hóp kvenna sem hafa verið tilnefndar og heiðraðar og þá má segja að það sem sameinar þær allar er að einhver þarna úti varði sinni dýrmætustu auðlind, tímanum sínum í að senda inn tilnefningar. Við hvetjum ykkur öll að tilnefna þannig að ólíkar konur af landinu öllu komist á blað og muna að þær eiga allar erindi.

Edda Sif Pind Aradóttir hlaut FKA hvatningarviðurkenninguna, Hafrún Friðriksdóttir FKA viðurkenninguna og Katrín S. Óladóttir FKA þakkarviðurkenninguna 2022 en nöfn þeirra voru kynnt í sjónvarpsþætti vegna Covid.

María Fjóla Harðardóttir, Fida Abu Libdeh og Bryndís Brynjólfsdóttir voru heiðraðar á Viðurkenningarhátíð FKA 2021.

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, Anna Stefánsdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
Húsfylli var í Gamla bíói þegar Anna Stefánsdóttir hlaut Þakkarviðurkenningu FKA 2020, Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir hlaut FKA viðurkenningu 2020 og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir hlaut Hvatningarviðurkenningu FKA 2020.

Framlína íslensks viðskipta- og atvinnulífs mæta á Viðurkenningarhátíð FKA.

Öll kyn úr framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs mæta á Viðurkenningarhátíð FKA. Vegna aðstæðna í samfélaginu á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru hefur Viðurkenningarhátíð Félag kvenna í atvinnulífinu FKA verið haldin hátíðleg í sjónvarpsþætti.

Hvaða þrjár konur verða heiðraðar og valdar úr hópi tilnefndra kvenna kemur í ljós á næstu FKA Viðurkenningarhátíð FKA á Grand Hótel þann 26. janúar 2023, þá mun koma í ljós hvaða konur hljóta FKA viðurkenninguna, FKA þakkarviðurkenninguna og FKA hvatningarviðurkenninguna 2023.

Nánari upplýsingar veitir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA (andrea@fka.is)

Viðurkenningarhafar síðustu ára – frá upphafi árið 1999:

KRÍTERÍA – Viðurkenningin er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning og fyrirmynd.

Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

Hafrún Friðriksdóttir

María Fjóla Harðardóttir

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir

Margrét Kristmannsdóttir

Erna Gísladóttir

Guðrún Hafsteinsdóttir

Birna Einarsdóttir

Guðbjörg Matthíasdóttir

Liv Bergþórsdóttir

Margrét Guðmundsdóttir

Rannveig Grétarsdóttir

Aðalheiður Birgisdóttir

Vilborg Einarsdóttir

Rannveig Rist

Steinunn Sigurðardóttir

Halla Tómasdóttir

Ásdís Halla Bragadóttir

Katrín Pétursdóttir

Aðalheiður Héðinsdóttir

Svava Johansen

Elsa Haraldsdóttir

Þóra Guðmundsdóttir

Hillary Rodham Clinton

KRÍTERÍA – Hvatningarviðurkenningin er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar.

Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

Edda Sif Pind Aradóttir

Fida Abu Libdeh

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Helga Valfells

Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch

Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir

Kolbrún Hrafnkelsdóttir

María Rúnarsdóttir

Rakel Sölvadóttir

Helga Árnadóttir, Signý, Tulipop

Árný Elíasdóttir, Inga Björg, Ingunn B. Vilhjálms(Attendus)

Margrét Pála Ólafsdóttir

Marín Magnúsdóttir

Agnes Sigurðardóttir

Sigríður Margrét Guðmundsdóttir

Guðbjörg Glóða Logadóttir

Jón G. Hauksson

Edda Jónsdóttir

Freydís Jónsdóttir

Guðrún Hálfdánsdóttir

Íris Gunnarsdóttir/Soffía Steingríms

Lára Vilberg

KRÍTERÍA – Þakkarviðurkenningin er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.

Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

Katrín S. Óladóttir

Bryndís Brynjólfsdóttir

Anna Stefánsdóttir

Sigríður Ásdís Snævarr

Hildur Petersen

Hafdís Árnadóttir

Sigríður Vilhjálmsdóttir

Guðný Guðjónsdóttir

Guðrún Edda Eggertsdóttir

Guðrún Lárusdóttir

Erla Wigelund

Dóra Guðbjört Jónsdóttir

Bára Magnúsdóttir

Guðrún Birna Gísladóttir

Guðrún Agnarsdóttir

Guðrún Erlendsdóttir

Rakel Olsen

Guðrún Steingrímsdóttir

Vigdís Finnbogadóttir

Jórunn Brynjólfsdóttir

Unnur Arngrímsdóttir

Bára Sigurjónsdóttir

Vertu hreyfiafl, hafðu áhrif á val á FKA viðurkenningarhöfum.

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2023. Hægt er að tilnefna konur í öllum flokkum eða bara eina til og með 24. nóvember 2022.

Tilnefna HÉR

Kær kveðja – FKA

#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet #FKAViðurkenningarhátíðin2023