Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) vinnur að lagabreytingum sem innleiða kynjakvóta í stjórnir skráðra fyrirtækja í löndum ESB. Samkvæmt drögum að lagabreytingunum skulu að lágmarki 40% stjórnarmanna vera konur fyrir árið 2020. Að öðrum kosti verða fyrirtækin sektuð.
Financial Times greinir frá þessu í dag. Fram kemur í umfjöllun blaðsins að nokkur ríki ESB, þar á meðal Frakkland, Ítalía, Spánn og Holland, hafi þegar innleitt slíka kynjakvóta. Hugmyndirnar hafa hins vegar mætt harðri andstöðu í öðrum ríkjum, þar á meðal í Bretlandi og í Svíþjóð.
Búist er við því að áform um kynjakvóta í öllum ríkjum ESB verði kynnt opinberlega í næsta mánuði.
Sjá frétt Viðskiptablaðsins með því að smella hér.
Sjá frétt Financial Times með því að smella hér.