Viltu gerast velunnari FKA árið 2017?

Velunnarar FKA

Undanfarin ár hefur starfsemi FKA eflst til muna og orðið fjölbreyttari og umfangsmeiri um leið.  Undanfarin ár hefur stjórn FKA boðið félagskonum og fyrirtækjum þeirra að taka þátt með beinum hætti í uppbyggingu á félaginu, styrkja það og styðja enn frekar.

Með þátttöku geta félagskonur og fyrirtæki þeirra náð á áhrifaríkan hátt til sterks markhóps, sýnt stuðning í verki og stuðlað í leiðinni að því að efla félagið. 

Með þátttöku er félagið styrkt með beinum hætti og um leið eykur fyrirtækið sýnileika sinn innan sem utan félagsins.

Fyrirkomulagið 

Hér eru nánari upplýsingar um velunnarakerfið okkar – SMELLTU HÉR.

Ef þið hafið áhuga á að skoða betur þá sendið póst á framkvæmdastjóra FKA, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur sem gefur allar nánari upplýsingar, hrafnhildur@fka.is. Mikilvægt er að hafa hraðar hendur þar sem FKA viðurkenningarathöfnin er 25 janúar og viljum við gjarnan ljúka vinnu fyrir þann tíma og tryggja velunnurum okkar sýnileika.  

Við vonumst til að fá sterka bakhjarla til liðs við okkur á komandi ári. 

f.h. stjórnar FKA

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Formaður FKA og forstjóri Grayline