Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar

Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar fer fram 12. október í beinni útsendingu á www.ruv.is. Skráning er hafin:  Smellið hér

Fyrirlesarar á Jafnvægisvoginni 2022

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi með forsætisráðuneytinu, Sjóvá, Deloitte, Ríkisútvarpið og Pipar\TBWA.

Tilgangur verkefnisins

  • Að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi
  • Að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir
  • Að veita viðurkenningar og draga fram í sviðljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar
  • Að standa fyrir viðburðum og fræðslu og vekja samfélagið til hugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis
  • Að taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöðu

Smelltu hér ef þinn vinnustaður vill vera með í Jafnvægisvog FKA.