Kæra FKA kona!
Vinnumálastofnun er þátttakandi í Evrópuverkefninu GET mobile en markmið þess er m.a. að hvetja fyrirtæki til að taka þátt í mannaskiptaverkefnum á vegum Evrópusambandsins. Verkefnin gera fyrirtækjum kleift að fá lærlinga/starfsnema inn í fyrirtæki til lengri eða skemri tíma en neminn fær styrk til að fara og starfa í öðru landi.
Mannaskiptaverkefni eru oft vannýtt auðlind fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu og kannanir sýna að fyrirtækin, hika oft við að taka þátt. Hér á Íslandi hefur þessi möguleiki verið lítt notaður og fá fyrirtæki nýtt sér þetta tækifæri.
Dæmi um ávinninga af mannaskiptum geta verið aukin nýsköpun og frumkvæði í fyrirtækinu, fjölmenning og tungumálaþekking svo eitthvað sé nefnt.
Um hvað snýst verkefni okkar?
Eitt aðalmarkmið þess er yfirfærsla og þróun leiðbeininga til fyrirtækja sem taka þátt í mannaskiptaverkefnum.
Gerð hefur verið handbók fyrir fyrirtækin þar sem má finna gagnlegar upplýsingar um hvernig á að standa að málum.
Sett hefur verið upp heimasíða þar sem fyrirtæki geta skráð sig og leitað að samstarfsaðilum.
Vinnumálastofnun býður nú fyrirtækjum FKA að koma á kynningarfund þann 12.nóvember til að fræðast meira um möguleikana í mannaskiptaverkefnum Evrópusambandsins.
Á fundunum mun verkefnið verða kynnt, þeir möguleikar sem í boði eru, handbókin og heimasíðan sem hægt er að skrá sig á í þeim tilgangi að finna samstarfsaðila í öðru landi.
Nánari upplýsingar og skráning á fundina er hjá Ásdísi Guðmundsdóttur í síma 515-4860 eða í netfangið asdis.gudmundsdottir@vmst.is