Grand hóteli fimmtudaginn 16. maí kl. 8:30-10:00
Nýherji kynnir heitasta umræðuefnið í markaðs- og tæknigeiranum: “Social Business”
FKA konum er boðið að hlýða á færasta fólkið á þessu sviði. Sjá “Um fyrirlesara” neðar.
Ókeypis er á fundinn en nauðsynlegt að skrá sig Má taka vinkonu(r) með en nauðsynlegt að skrá þær til leiks – SMELLTU HÉR.
Hvað gerir gott innranet?
-Soffía Kristín Þórðardóttir, TM Software
Fyrirtæki mörg hver eru í vandræðum með innranetið. Þrátt fyrir miklar fjárfestingar er innranetið ekki að standast væntingar starfsfólks. Soffía Kristín Þórðardóttir hjá TM Software mun segja okkur hvað gerir gott innranet og hvaða aðferðir fyrirtæki geta lært af samfélagsmiðlunum og tileinkað sér til að innranetið skili árangri. Soffía er forstöðumaður á sviði Vef- og sérlausna hjá TM Software, dótturfyrirtæki Nýherja. Þar leiðir hún teymi 40 hugbúnaðarsérfræðinga, viðmótshönnuða og ráðgjafa.
Social Business: Náðu því besta út úr starfsfólki
-Louis Richardson, IBM
Samfélagsmiðlar hafa gjörbreytt net- og samskiptanotkun heilu kynslóðanna á skömmum tíma. Slíkir miðlar hafa átt þátt í að ögra og jafnvel kollvarpa stjórnvöldum, aukið upplýsingaflæði og fært valdið nær fólki, eins og dæmin sanna. Nú vilja fyrirtæki og stofnanir nýta sér þessa byltingarkenndu tækni í sína þágu um leið og kynslóðir sem alast upp við notkun samfélagsmiðla fara að láta til sín taka á vinnumarkaði.
Fundarstjóri: Ólöf Guðmundsdóttir Salmon, Viðskiptastjóri Nýherja