Þriðjudaginn 7. janúar – Facebook Kick Off
Nú setjum við okkur í gírinn og veltum því fyrir okkur hvað
við viljum sjá að árið 2014 gefi okkur! Því hefjum við leik með “KICK-START” FUNDUR Í BEINNI 7.JANÚAR 2014. Þú nálgast gögnin á netinu og situr hvar sem hentar til að taka þátt í þessum kröftuga fundi með Rúnu Magnúsdóttur Markþjálfa. SMELLTU HÉR FYRIR KICK START FUND.
**
Fimmtudaginn 9. janúar – FKA Suðurland
FKA Suðurland hittist reglulega. Og það er komið að því á nýju ári.
Hittumst fimmtudaginn 9. janúar kl 19:30. Áhugasamar mæta í Eldhúsið hjá Katharínu að Tryggvagötu 40.
**
Miðvikudaginn 15. janúar – fjölmiðlaframkoma (ath breytt dagsetning)
Hagnýtur fundur til að efla sjálfan sig fyrir framkomu í fjölmiðlum. Taktu daginn frá. Fyrirlesarar með reynslu koma fram og gefa góð ráð. Má segja að fjölmiðlafundarröð og þjálfun sé nú í boði hjá FKA í tengslum við fjölmiðlaverkefnið sem við ýttum úr vör á síðasta ári.
SMELLTU HÉR til að lesa um verkefnið og fyrsta fundinn.
Hér eru svo fjölmargir viðburðir til viðbótar sem þið ættuð að kíkja á og skrá hjá ykkur: SMELLTU HÉR fyrir viðburði fram að sumri 2014.
**
Minnum að lokum á FKA hátíðina í lok mánaðarins:
Hin árlega FKA viðurkenningarhátíð fer fram í Hörpu 30. janúar kl. 16:30-18:00. Makar velkomnir með í athöfnina. Skráning mikilvæg svo við getum áætlað fyrir veitingamagn.
Taktu daginn … og kvöldið einnig! Að hátíð lokinni ætlum við nefnilega að færa okkur upp á veitingastaðinn Kolabrautina, sem er staðsettur í Hörpu. Staðurinn er eingöngu ætlaður FKA konum þetta kvöld og því hvetjum við ykkur til að fjölmenna.