Í FKA starfa alls átta nefndir en grunnur að velgengni félagasamtaka eins og FKA eru öflugar félagskonur.
Formaður og framkvæmdastjóri boða til haustfundar með öllum nefndarkonum þann 7. september kl.8.30 – 10.00 í Húsi Atvinnulífsins í Borgartúni 35 og hafa nefndarkonur fengið fundarboð.
Á fundinum verður farið yfir verklag, formaður, varaformaður og gjaldkeri kosinn og lögð verða drög að vetrardagskrá.
FKA sem og nefndir hlakka til að senda á félagskonur yfirlit í september yfir spennandi vetrardagskrá og kynna nýjung sem eru fastir fundir í Húsi Atvinnulífsins alla miðvikudagsmorgna í október og nóvember.
Hér má sjá yfirlit yfir þær FKA konur sem eru í nefndum og munu halda uppi því góða starfi í FKA veturinn 2016 – 2017.