Engin kona forstjóri í Kauphöllinni.

Stjórn FKA harmar að 0%
kynjafjölbreytileiki er nú meðal forstjóra kauphallarfyrirtækja.

Þetta er verulegt
umhugsunarefni fyrir atvinnulífið að nú hefur eina konan sem stýrt hefur
fyrirtæki innan Kauphallar látið af störfum. 
FKA vill beina þeim tilmælum til eigenda hlutabréfa á hlutabréfamarkaði
svo sem lífeyrissjóða og annarra á markaði að varðveita markmið atvinnulífsins
að byggja upp fjölbreytan stjórnendahóp.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
formaður Félags kvenna í atvinnulífinu segir:

„Um leið og ég óska Jakobi
Sigurðssyni til hamingju með nýja starfið þá beini ég þeim tilmælum til hans og
annarra forstjóra og stjórnenda að byggja upp fjölbreytan og öflugan
stjórnendahóp. Það er verulegt umhugsunarefni fyrir atvinnulífið hversu
einsleitur forstjórahópur landsins er“ segir Þórdís Lóa.