FKA fagnar 20 ára starfsafmæli á árinu 2019 en félagið var stofnað þann 9.apríl árið 1999.
Af gefnu tilefni verður blásið til glæsilegs viðburðar föstudaginn 5. apríl og auglýsti FKA fyrir skömmu eftir konum í afmælisnefnd.
Það er FKA mikil gleði að kynna til leiks þær flottu konur í Afmælisnefnd FKA, sem munu sjá um skipulagningu á afmælisviðburði FKA.
AFMÆLISNEFND FKA
Formaður:
Hanna Gunnlaugsdóttir
Verkefnastjóri:
Unnur Elva Arnardóttir
Verkefnastjóri:
Eva Michelsen
Skemmtanastjóri:
Steinunn Camilla
Hönnuður:
Julie Encausse
* á myndina vantar Julie Encausse en við bættist ofurkrúttið Alexandra dóttir Steinunnar Camillu.