Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka ræðir nauðsyn fjölbreytileikans í FKA-blaðinu.

Fjallað er um félagskonur FKA og fjölbreytta starfsemi Félags kvenna í atvinnulífinu. Þar má einnig finna umfjöllun um helstu verkefni sem FKA hefur staðið fyrir og eru á döfinni á næstunni.

„Fjölbreytt samsetning hóps er ekki aðeins mikilvæg heldur nauðsynleg,“ segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka í blaðinu en bankinn hefur lengi verið einn af bakhjörlum FKA og er eitt þeirra fyrirtækja sem hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar.

Það er virkilega ánægjulegt að hafa Íslandsbanka um borð í FKA-blaðinu þegar jafnréttispúlsinn er tekinn á stjórnendum í atvinnulífinu, stjórnendum sem hafa einlægan vilja til að vera leiðandi á sviði jafnréttismála á Íslandi og skilja í hverju ávinningurinn felst af þátttöku allra kynja á öllum sviðum.

Takk kæra Birna Einarsdóttir fyrir að verja tíma með FKA og gefa okkur öllum af þér!