Sannkölluð jólastemmning um landið út og suður hjá FKA.
Elva Dögg Madame tourette, Carrin Patman sendiherra Bandaríkjanna, Fía Sól, Obbuló í Kósímó og fleiri öflugar sem létu sig ekki vanta.
Jólarölt Félags kvenna í atvinnulífinu telur í hundruðum kílómetra þar sem konur um land allt gera sér glaðan dag vítt og breitt um landið. Markmiðið með jólarölti FKA er að styðja við góða hluti í nærumhverfi deilda félagsins þar sem verslað er við félagskonur í heimabyggð. Öflugar deildir og nefndir starfa í FKA, rúmlega þrettánhundruð konur um landið allt sem hringja inn jólin í góðum félagsskap.
Tækifæri til tengslamyndunar og að fóstra nærumhverfið.
Suðurlandskonur buðu heim og gerðu sér glaðan dag í Hveragerði með fordrykk hjá félagskonunni Írisi Brá Svavarsdóttur í Monark bókhaldsþjónustu og Elínu Káradóttir í Byr fasteignasölu, því næst var haldið til Laufeyjar Sifjar Lárusdóttur á Ölverk Pizza & Brewery. Félagskonur taka vinkonu með á jólarölt FKA vítt og breitt um landið og skapast einstök tengsl þegar rölt er á milli fyrirtækja FKA kvenna og kíkt í nærliggjandi fyrirtæki. „Þetta kvöld er „Kósýkvöld í Hveragerði,“ segir Laufey Guðmundsdóttir formaður FKA Suðurland. Fjöldinn allur af fyrirtækjum í bænum var með lengri opnunartíma og hægt var að gera góð jólainnkaup, vörur voru á sértilboð í tilefni kvöldsins og viðburðir á ýmsum stöðum.
Sendiherra Bandaríkjanna á jólamarkaði FKA New Icelanders.
Carrin Patman sendiherra Bandaríkjanna lét sig ekki vanta á jólamarkað FKA New Icelanders og sannkölluð markaðsstemning skapaðist þegar nefndin stóð fyrir pop-up jólamarkaði í Granda Mathöll. Suðurnesin buðu einnig uppá „pop up verslun” í ár samhliða almennu jólafjöri sem var hjá deildinni í fyrirrúmi og hófst hjá Library Bistrobar. Þær FKA konur sem eru ekki með verslun eða fyrirtæki á Hafnargötunni gátu fengið að vera með vörur sínar á bás og kynnt, selt sínar vörur og þjónustu sem sumar hverjar eru með á netinu.
Fía Sól, Obbuló í Kósímó og fleiri góðar úr Garðabæ.
Stórglæsileg dagskrá árlegs jólarölts Viðskiptanefndar í höfuðborginni hófst að þessu sinni á Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi Garðabæ þar sem Sigríður Hulda Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar tók á móti konunum með léttum veitingum ásamt Björgu Fenger úr bæjarstjórn. Gafst tími fyrir tengslamyndun og í framhaldinu var rölt um Garðatogið og glæsilegar verslanir þræddar sem eiga það sameiginlegt að vera reknar af félagskonum FKA.
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur í Garðabæ sem eitt sinn var Bæjarlistamaður Garðabæjar var með fjörugt erindi um staðarblæinn í Garðabæ og söguna sem skapað hafa píur á borð við Fíu Sól og nú Obbuló í Kósímó en þær eiga rætur sínar að rekja í Garðabænum. „Móttökurnar voru frábærar,“ segir Erla Símonardóttir formaður Viðskiptanefndar FKA sem er ein af öflugum nefndum FKA.
Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir MADAME TOURETTE var með uppistand sem sló heldur betur í gegn og ætti fólk að kynna sér dagskrá í Tjarnabíói þar sem Elva Dögg hefur verið með uppistand sem fær fólk til að verkja í kinnarnar af hlátri.
#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet @Grace Achieng @Emily Nikolova @Danielle Pamela Neben @Berenice Barrios @Michelle Bird @Sólveig Jan #FKANewIcelanders #FKANýirÍslendingar #FKASuðurnes @Guðný Birna Guðmundsdóttir @Fida Abu Libdeh @Anna Karen Sigurjónsdóttir @Herborg Svana Hjelm @Rakel Lind Hauksdóttir Michelsen @Snjólaug Jakobsdóttir @Eydís Mary Jónsdóttir @Gunnhildur Pétursdóttir @Þuríður Halldóra Aradóttir @Sigurbjörg Gunnarsdóttir @Unnur Svava Sverrisdóttir @Katrín Kristjana Hjartardóttir @Andrea Róbertsdóttir @Herborg Svana Hjelm @Sigríður Hulda Jónsdóttir @Björg Fenger @Sigríður Sigurjónsdóttir #Hönnunarsafn Íslands @Kristín Helga Gunnarsdóttir @Erla Símonardóttir #ViðskiptanefndFKA @Sara Baxter @Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir @María Hrönn Guðmundsdóttir @Ragnhildur Vigfúsdóttir @Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir #MADAME TOURETTE #Tjarnabíói #Garðabær #Garðatorg #Me&Mu @María Hrönn Guðmundsdóttir Busk #JólaröltFKA @Unnur Elva Arnardóttir #FKASuðurland @Þuríður Halldóra Aradóttir Braun @Bryndís Sigurðardóttir @Laufey Gudmundsdottir @Helga Jóhanna Úlfarsdóttir @Ingunn Jónsdóttir @Íris Brá Svavarsdóttir #MonarkBókhald @Íris Tinna Margrétardóttir @Ragna Gunnarsdóttir @Sigríður Helga Sveinsdóttir @Elín Káradóttir #BYRfasteignasala @Katrín Kristjana Hjartardóttir @Guðrún Gunnarsdóttir @Dóra Eyland @Unnur Elva Arnardóttir @Sigríður Hrund Pétursdóttir @Íris Ósk Ólafsdóttir @Sigrún Jenný Barðadóttir