Með ósk um gleðileg jól og farsæld á komandi ári!

Megi árið verða okkur öllum farsælt!

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA þakkar samfylgdina á árinu sem líður og sendir hugheila og innilega jólakveðju.

Hlökkum til að fylgjast með félagskonum fjárfesta í sér með þátttöku og setja sig á dagskrá þegar við hefjum árið 2023 – sterkari saman.

Fjölmargir viðburðir eru komnir á viðburðadagatalið á heimasíðunni og stöðugt bætist við. FKA Viðurkenningarhátíðin okkar verður til dæmis á Grand þann 26. janúar 2023 sem er opinn viðburður. Í Arion verður Sýnileikadagur FKA fyrir félagskonur í mars og allt starfsárið má finna fræðslu og annað valdeflandi fjörefni á golfvellinum, í hlaupaskóm … og í hælaskóm.


Hlökkum til að verja tíma með ykkur!


Kveðja,


Stjórn FKA og framkvæmdastjóri