Brautargengi – Ertu með hugmynd?

Ný námskeið að hefjast á Akureyri og í Reykjavík

Brautargengi er námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur og fyrir konur sem eru í atvinnurekstri en vilja auka rekstrarþekkingu sína. Konurnar vinna með hugmynd sína, skrifa heildstæða viðskiptaáætlun undir leiðsögn sérfræðinga og læra um stofnun og rekstur fyrirtækja. Meginskilyrði eru að þátttakandi hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, sé að hefja rekstur eða sé nú þegar í rekstri. Námskeiðið hefur verið í boði víðsvegar um landið og fer nú af stað á haustönn hvorutveggja í Reykjavík og á Akureyri.  Námskeiðið í Reykjavík hefst 10 september og á Akureyri 12. september.

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningarform er að finna hér