Coca-Cola á Íslandi aðalstyrktaraðili FKA á 25 ára afmælisári félagsins.

F R É T T A T I L K Y N N I N G

Coca-Cola á Íslandi aðalstyrktaraðili Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA.

,,Við hjá Coca-Cola erum afar ánægð að leggja okkar lóð á vogarskálarnar og styðja við FKA á 25 ára afmælisári félagsins,” segir Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola á Íslandi þegar undirritaður var samstarfssamningur við Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA.

 

Með samningum gerist Coca-Cola á Íslandi aðalstyrktaraðili FKA, sem bakhjarl félagsins á afmælisári FKA sem gengið er í garð. Meginmarkmið er að senda skýr skilaboð út um mikilægi þess að jafna hlut kynjanna í atvinnulífinu, setja jafnrétti á dagskrá og hlúa að okkur til að ná jafnvægi í leik og starfi. Þá fáum við að kynnast því góða starfi sem Coca-Cola á Íslandi vinnur á sínum vinnustað er kemur að því að brúa kynjabilið með markvissum aðferðum í starfsþróun. Um er að ræða áhrifaríkar aðferðir sem mikilvægt er að kynna betur fyrir atvinnulífinu og verður það gert með ýmsum leiðum ásamt því að fagna afmælisári Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA og gera okkur glaðan dag.

„Það er mikil eftirvænting og við hjá FKA erum virkilega ánægðar með samkomulagið, við komum til með að vinna að sameiginlegum markmiðum í þá átt að jafna tækifæri kynjanna í atvinnulífinu, að standa þétt saman til að stuðla að auknu jafnrétti því að samfélagið okkar skiptir okkur gríðarlegu miklu máli. Af því að fólk skiptir máli,“ segir Unnur Elva Arnardóttir formaður FKA. „Öll við borðið full tilhlökkunar enda tækifæri víða til að gera betur í málaflokknum.“

,,FKA hefur gegnt afar mikilvægu hlutverki í sögu jafnréttisbaráttunnar á Íslandi og er ómissandi hreyfiafl í baráttunni um að jafna stöðu kynjanna í atvinnulífinu. Áherslur FKA ríma einnig afar vel við markmið okkar hjá Coca-Cola á Íslandi sem er að vinna markvisst að því að jafna stöðu og tækifæri allra kynja”, segir Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola á Íslandi.

 

 

 

// LJÓSMYND: Silla Páls

#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet #FKA25ára @Silla Páls #Coca-Cola á Íslandi @Unnur Elva Arnardóttir @Anna Regína Björnsdóttir