Innilega til hamingju! Ásta, Guðfinna og Grace! // RÚV

Ásta, Guðfinna og Grace Achieng heiðraðar á Viðurkenningarhátíð FKA 2023 RÚV HÉR

Húsfylli og mikill hátíðleiki umlukti Viðurkenningarhátíð FKA þegar Ásta S. Fjeldsted, Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir og Grace Achieng voru heiðraðar á stórglæsilegum viðburði á Hótel Reykjavík Grand.

Upptaka HÉR frá hátíð.

FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega við hátíðlega athöfn þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. Að vanda voru veittar viðurkenningar á hátíðinni til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra flutti erindi og fagnaði með þessum miklu fyrirmyndum. Um er að ræða stórviðburð í viðskiptalífinu þar sem framlína í íslensku atvinnulífi og nánir samstarfsfélagar og fjölskyldur viðurkenningarhafar fagna saman.

Myndir @Silla Páls

Ásta S. Fjeldsted hlaut FKA viðurkenningu 2023 sem veitt er fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.

Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir hlaut Þakkarviðurkenningu FKA 2023 sem er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf stjórnanda í atvinnulífinu.

Grace Achieng hlaut Hvatningarviðurkenningu FKA 2023 sem er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði.

Dómnefndinni er þakkað gefandi og gott starf.

Það varð strax líf og fjör eftir að opnað var fyrir tilnefningar síðasta haust og lögð var áhersla á að fá nöfn ólíkra kvenna af landinu öllu með ólíkan bakgrunn og reynslu í pottinn enda mikilvægt að beina kastaranum að flottum fyrirmyndum og fjölbreytileika.

Dómnefndinni er þakkað gefandi og gott starf fyrir viðurkenningarhátíðina í ár en í henni voru Árni Sigfússon, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur og bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Chanel Björk Sturludóttir, dagskrárgerðarkona og meðstofnandi félagasamtakanna „Hennar rödd“, Kathryn Gunnarsson stofnandi og framkvæmdastjóri Geko Consulting, Logi Pedro Stefánsson, listamaður og meðeigandi 101 Productions, Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarmaður og fyrrverandi forstjóri Icepharma.  Stjórnarkona FKA, Guðrún Gunnarsdóttir deildarstjóri Fastus var formaður dómnefndar.

Að lokinni athöfn á Hótel Reykjavík Grand var gestum boðið að fagna með viðurkenningarhöfum og þiggja léttar veitingar og má horfa á upptöku á heimasíðu félagsins.

Félag kvenna í atvinnulífinu FKA óskar viðurkenningarhöfum innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu. FKA vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til allra sem tilnefndu konur í flokkunum þremur og öllum gestum og þeim sem komu að hátíðinni á einhvern hátt.

Stórglæsileg Viðurkenningarhátíð og FKA Sérblað komið út í tilefni dagsins nálgast má HÉR

Innilega til hamingju með daginn!

#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet #FKAViðurkenningarhátíðin2023 #FKAViðurkenningarhátíð2023 #FKAViðurkenningarhátíð #FKAþakkarviðurkenning #FKAviðurkenningin #FKAhvatningarviðurkenning #Torg #Fréttablaðið #HótelReykjavíkGrand @Silla Páls