Rich Thinking: How Smart Women Invest í Hörpu – Upptaka frá fundinum og hlekkur á skýrslu

Kæru félagskonur,

Upptöku frá fundi VÍB, NASDAQ OMX Iceland, Naskar Investment og FKA með Barbara Stewart má nú nálgast á samfélagsmiðlum samstarfsaðilanna eða með því að smella á eftirfarandi hlekk - UPPTAKA fundarins

Hér er einnig hlekkur á skýrsluna hennar: Rich Thinking: How Smart Women Invest.

Við þökkum ykkur komuna á fundinn. 

**

BARBARA STEWART Í NORÐURLJÓSASAL HÖRPU, 21. MARS KL. 8.30 – 10.00

**

Við erum stolt af því að bjóða upp á fund með Barböru Stewart, fjármálasérfræðingi og sjóðsstjóra hjá Cumberland Private Wealth Management í Toronto, Kanada. Barbara flytur erindi um nýjustu rannsókn sína Rich Thinking: How Smart Women Invest en þar skoðar hún m.a. hvernig konur nálgast fjárfestingar, hvernig þær byrja og í hverju þær fjárfesta helst.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður FKA, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland og Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kjölfestu ræða málin við Barböru við pallborðið.

Fundarstjóri er Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri hjá VÍB, og opnunarerindi flytur Kristín Jóhannsdóttir, samskiptastjóri hjá NASDAQ OMX Iceland.

Í boði verður léttur morgunverður og ókeypis bílastæði í Hörpu meðan á fundinum stendur. Miðaverð er 2.000 kr.

Húsið verður opnað kl. 08:00.

Miðasala er á midi.is