Sannkölluð jólastemmning um landið út og suður hjá FKA.

Sannkölluð jólastemmning um landið út og suður hjá FKA.

Elva Dögg Madame tourette, Carrin Patman sendiherra Bandaríkjanna, Fía Sól, Obbuló í Kósímó og fleiri öflugar sem létu sig ekki vanta.

Jólarölt Félags kvenna í atvinnulífinu telur í hundruðum kílómetra þar sem konur um land allt gera sér glaðan dag vítt og breitt um landið. Markmiðið með jólarölti FKA er að styðja við góða hluti í nærumhverfi deilda félagsins þar sem verslað er við félagskonur í heimabyggð. Öflugar deildir og nefndir starfa í FKA, rúmlega þrettánhundruð konur um landið allt sem hringja inn jólin í góðum félagsskap.

Laufey Guðmundsdóttir, formaður FKA Suðurlandi, Helga Jóhanna Úlfarsdóttir og Íris Tinna Margrétardóttir stjórnarkonur FKA Suðurlandi og jólasveinar í Hveragerði.

Tækifæri til tengslamyndunar og að fóstra nærumhverfið.

Suðurlandskonur buðu heim og gerðu sér glaðan dag í Hveragerði með fordrykk hjá félagskonunni Írisi Brá Svavarsdóttur í Monark bókhaldsþjónustu og Elínu Káradóttir í Byr fasteignasölu, því næst var haldið til Laufeyjar Sifjar Lárusdóttur á Ölverk Pizza & Brewery. Félagskonur taka vinkonu með á jólarölt FKA vítt og breitt um landið og skapast einstök tengsl þegar rölt er á milli fyrirtækja FKA kvenna og kíkt í nærliggjandi fyrirtæki. „Þetta kvöld er „Kósýkvöld í Hveragerði,“ segir Laufey Guðmundsdóttir formaður FKA Suðurland. Fjöldinn allur af fyrirtækjum í bænum var með lengri opnunartíma og hægt var að gera góð jólainnkaup, vörur voru á sértilboð í tilefni kvöldsins og viðburðir á ýmsum stöðum.

Sannkölluð markaðsstemning skapaðist á jólamarkaði FKA New Icelanders í Granda Mathöll.

Sendiherra Bandaríkjanna á jólamarkaði FKA New Icelanders.

Carrin Patman sendiherra Bandaríkjanna lét sig ekki vanta á jólamarkað FKA New Icelanders og sannkölluð markaðsstemning skapaðist þegar nefndin stóð fyrir pop-up jólamarkaði í Granda Mathöll. Suðurnesin buðu einnig uppá „pop up verslun” í ár samhliða almennu jólafjöri sem var hjá deildinni í fyrirrúmi og hófst hjá Library Bistrobar. Þær FKA konur sem eru ekki með verslun eða fyrirtæki á Hafnargötunni gátu fengið að vera með vörur sínar á bás og kynnt, selt sínar vörur og þjónustu sem sumar hverjar eru með á netinu.

Grace Achieng formaður FKA New Icelanders og Carrin Patman sendiherra Bandaríkjanna á jólamarkaði.

Fía Sól, Obbuló í Kósímó og fleiri góðar úr Garðabæ.

Stórglæsileg dagskrá árlegs jólarölts Viðskiptanefndar í höfuðborginni hófst að þessu sinni á Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi Garðabæ þar sem Sigríður Hulda Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar tók á móti konunum með léttum veitingum ásamt Björgu Fenger úr bæjarstjórn. Gafst tími fyrir tengslamyndun og í framhaldinu var rölt um Garðatogið og glæsilegar verslanir þræddar sem eiga það sameiginlegt að vera reknar af félagskonum FKA.

Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Elva Dögg MADAME TOURETTE, Sara Baxter, og Erla Símonardóttir formaður Viðskiptanefndar FKA 2022-23.

Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur í Garðabæ sem eitt sinn var Bæjarlistamaður Garðabæjar var með fjörugt erindi um staðarblæinn í Garðabæ og söguna sem skapað hafa píur á borð við Fíu Sól og nú Obbuló í Kósímó en þær eiga rætur sínar að rekja í Garðabænum. „Móttökurnar voru frábærar,“ segir Erla Símonardóttir formaður Viðskiptanefndar FKA sem er ein af öflugum nefndum FKA.

Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir MADAME TOURETTE var með uppistand sem sló heldur betur í gegn og ætti fólk að kynna sér dagskrá í Tjarnabíói þar sem Elva Dögg hefur verið með uppistand sem fær fólk til að verkja í kinnarnar af hlátri.

Mynd sem segir meira en mörg orð um uppistand Elvu Daggar MADAME TOURETTE.

Í versun Me&Mu í Garðabæ má finna fjölmargar vörur sem félagskonur FKA framleiða.

#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet @Grace Achieng @Emily Nikolova @Danielle Pamela Neben @Berenice Barrios @Michelle Bird @Sólveig Jan #FKANewIcelanders #FKANýirÍslendingar #FKASuðurnes @Guðný Birna Guðmundsdóttir @Fida Abu Libdeh @Anna Karen Sigurjónsdóttir @Herborg Svana Hjelm @Rakel Lind Hauksdóttir Michelsen @Snjólaug Jakobsdóttir @Eydís Mary Jónsdóttir @Gunnhildur Pétursdóttir @Þuríður Halldóra Aradóttir @Sigurbjörg Gunnarsdóttir @Unnur Svava Sverrisdóttir @Katrín Kristjana Hjartardóttir @Andrea Róbertsdóttir @Herborg Svana Hjelm @Sigríður Hulda Jónsdóttir @Björg Fenger @Sigríður Sigurjónsdóttir #Hönnunarsafn Íslands @Kristín Helga Gunnarsdóttir @Erla Símonardóttir #ViðskiptanefndFKA @Sara Baxter @Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir @María Hrönn Guðmundsdóttir @Ragnhildur Vigfúsdóttir @Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir #MADAME TOURETTE #Tjarnabíói #Garðabær #Garðatorg #Me&Mu @María Hrönn Guðmundsdóttir Busk #JólaröltFKA @Unnur Elva Arnardóttir #FKASuðurland @Þuríður Halldóra Aradóttir Braun @Bryndís Sigurðardóttir @Laufey Gudmundsdottir @Helga Jóhanna Úlfarsdóttir @Ingunn Jónsdóttir @Íris Brá Svavarsdóttir #MonarkBókhald @Íris Tinna Margrétardóttir @Ragna Gunnarsdóttir @Sigríður Helga Sveinsdóttir @Elín Káradóttir #BYRfasteignasala @Katrín Kristjana Hjartardóttir @Guðrún Gunnarsdóttir @Dóra Eyland @Unnur Elva Arnardóttir @Sigríður Hrund Pétursdóttir @Íris Ósk Ólafsdóttir  @Sigrún Jenný Barðadóttir