Viðurkenningarathöfnin
Hin árlega viðurkenningathöfn Félags kvenna í atvinnulífinu fer fram í Flóa í Hörpu (opið rými á 1.hæð), fimmtudaginn 30. janúar kl. 16.30-18.00.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra flytur ávarp og afhendir viðurkenningar
Makar eru velkomnir á þessa hátíðlegu athöfn.
Léttar veitingar í boði
Stjórn FKA
**
Hátíðarkvöldverður á Kolabrautinni eftir viðurkenningarathöfn
Að athöfn lokinni færum við okkur upp á Kolabraut þar sem við snæðum hátíðarkvöldverð til heiðurs viðurkenningarhöfum og fögnum jafnframt 15 ára afmælisári.
Við hvetjum því félagskonur til að fjölmenna þangað.
Matseðill kvöldsins verður eftirfarandi:
Fordrykkur
Hægelduð og fennelkrydduð bleikja með gullappelsínu, sítrónuolía
Canneloni fyllt með spínati ricotta og parmesan borið fram með kóngasveppasósu
Kaffi og heimalagað konfekt
Verð kr. 7100.-
Skráning er hafin og er mikilvægt er að skrá sig í kvöldverðinn
(Ath. sér skráning er fyrir viðurkenningarathöfnina).
Hátíðarkveðja
Stjórn FKA
Hér eru upplýsingar um HÁTÍÐARKVÖLDVERÐINN – Smelltu hér