Til hamingju kæra Ásta! Viðurkenningarhátíð FKA 2023

Viðurkenningarhátíð FKA 2023.

Til hamingju kæra Ásta!

,,Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, hlaut í gær viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu. Hún segir viðurkenninguna hafa komið sér í opna skjöldu.”

Húsfylli og mikill hátíðleiki umlukti Viðurkenningarhátíð FKA þegar Ásta S. Fjeldsted, Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir og Grace Achieng voru heiðraðar á stórglæsilegum viðburði á Hótel Reykjavík Grand.

Nánar HÉR

Myndir @Silla Páls

Ásta S. Fjeldsted hlaut FKA viðurkenningu 2023 sem veitt er fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið og eru konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.

Grace Achieng hlaut Hvatningarviðurkenningu FKA 2023 sem er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar.

Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir hlaut Þakkarviðurkenningu FKA 2023 sem er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf stjórnanda í atvinnulífinu.

Dómnefndinni er þakkað gefandi og gott starf.

Það varð strax líf og fjör eftir að opnað var fyrir tilnefningar síðasta haust og lögð var áhersla á að fá nöfn ólíkra kvenna af landinu öllu með ólíkan bakgrunn og reynslu í pottinn enda mikilvægt að beina kastaranum að flottum fyrirmyndum og fjölbreytileika.

Dómnefndinni er þakkað gefandi og gott starf fyrir viðurkenningarhátíðina í ár en í henni voru Árni Sigfússon, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur og bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Chanel Björk Sturludóttir, dagskrárgerðarkona og meðstofnandi félagasamtakanna „Hennar rödd“, Kathryn Gunnarsson stofnandi og framkvæmdastjóri Geko Consulting, Logi Pedro Stefánsson, listamaður og meðeigandi 101 Productions, Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarmaður og fyrrverandi forstjóri Icepharma.  Stjórnarkona FKA, Guðrún Gunnarsdóttir deildarstjóri Fastus var formaður dómnefndar.

Upptaka aðgengileg.

Upptaka HÉR

Það var Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA sem var kynnir á hátíðinni og Sigríður Hrund Pétursdóttir formaður FKA og Guðrún Gunnarsdóttir formaður dómnefndar kynntu FKA viðurkenningarhafa á svið ásamt stjórnarkonum félagsins þeim Unni Elvu Arnardóttur varaformanni FKA, Dóru Eyland ritara FKA, Katrínu Kristjönu Hjartardóttur gjaldkera FKA, Sigrúnu Jenný Barðadóttur og Írisi Ósk Ólafsdóttur.

Að lokinni athöfn á Hótel Reykjavík Grand var gestum boðið að fagna með viðurkenningarhöfum og þiggja léttar veitingar og má horfa á upptöku á heimasíðu félagsins.

Félag kvenna í atvinnulífinu FKA óskar viðurkenningarhöfum innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu. FKA vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til allra sem tilnefndu konur í flokkunum þremur og öllum gestum og þeim sem komu að hátíðinni á einhvern hátt.

MYNDASYRPA // @Silla Páls

Stórglæsileg Viðurkenningarhátíð og FKA Sérblað komið út í tilefni dagsins nálgast má HÉR

Innilega til hamingju með daginn!

#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet #FKAViðurkenningarhátíðin2023 #FKAViðurkenningarhátíð2023 #FKAViðurkenningarhátíð #FKAþakkarviðurkenning #FKAviðurkenningin #FKAhvatningarviðurkenning #Torg #Fréttablaðið #HótelReykjavíkGrand @Silla Páls