Tryggðu þér pláss í stórglæsilegu sérblaði sem kemur út að morgni daginn sem Viðurkenningarhátíð FKA verður haldin á 25 ára afmæli félagsins.
Hátíð í bæ og sviðið er okkar í stórglæsilegu sérblaðinu.
Blaðið er gefið út af Árvakri og kemur út að morgni þann 24. janúar 2024, daginn sem Viðurkenningarhátíð FKA verður haldin á Hótel Reykjavík Grand.
Þar sem um er að ræða hátíð á 25 ára afmælisári félagsins mun sérblaðið vafalítið ná miklu flugi og vekja mikla athygli. Það hefur verið bæði gefandi og hvetjandi að kynnast konum í atvinnulífinu í sérblaði Viðurkenningarhátíðar FKA síðustu ár og valdeflandi að draga þær sérstaklega fram á degi sem við heiðrum konur – þegar sviðið er okkar. Þetta er því einstakt tækifæri til að rifja upp, þakka fyrir og kynna allt það góða starf sem konur í atvinnulífinu eru að inna af hendi í dag.
Góð leið til að kynna þjónustu og vöru.
Kynning (auglýsing í viðtalsformi) er góð leið til að gefa lesendum innsýn í fyrirtæki og kynna þjónustu, sérþekkingu og vörur sem eru í boði. Blaðið er að mestu sett saman af keyptum kynningum en einnig eru auglýsingapláss í boði. Allar kynningar úr blaðinu birtast á www.mbl.is og þaðan er hægt að deila á miðla, heimasíðu einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.
Komið til móts við fyrirtæki í eigu félagskvenna / fleiri konum gefið tækifæri á þátttöku.
Einyrkjar, smærri fyrirtæki og félagskonur FKA þar sem eignarhald fyrirtækis er að meirihluta í eigu félagskonu/félagskvenna FKA geta haft samband við Berglindi Guðrúnu Bergmann (berglindb@mbl.is) og fengið upplýsingar um sérkjör á kynningu og/eða auglýsingum í sérblaðinu okkar.
Auglýsingaskil.
Auglýsingaskil eru mánudaginn 22. janúar 2024 en síðasti séns fyrir kynningu og/eða umfjöllun er mánudaginn 15. janúar 2024 en fyrir þann tíma þarf að koma svar um hvort þið ætlið að vera með kynningu eða ekki.
Ferlið fyrir kynningar er svona:
Félagskonur setja sig í samband við Berglindi Guðrúnu Bergmann í netfangi berglindb@mbl.is eða síma 844 9545 / 569 1246.
- Blaðamaður hefur samband við tengilið fyrirtækisins.
- Ákveðinn er tími fyrir viðtal og heimsókn ljósmyndara sem mun mynda það sem þið viljið fyrir kynninguna. Athugið að greitt er sérstaklega fyrir myndvinnslu.
- Blaðamaður biður svo yfirleitt um punkta til að byggja viðtal á.
- Viðtalið er tekið í gegnum síma.
- Eftir viðtalið er kynningin sett upp hjá umbrotsdeild Árvakurs (hægt að biðja um að sjá kynninguna áður en blaðið fer í prent upp á breytingar sem verður að skila innan ákveðins tímaramma.)
- Sem fyrr segir birtist kynningin einnig á mbl.is og því geta öll deilt efni að vild.
Hér má sjá verðskrá fyrir auglýsingar og kynningar í blaðið:
- 2×10 auglýsing. – 35.000 + vsk.
- 2×15 auglýsing. – 52.000 + vsk.
- 2×20 auglýsing. – 69.000 + vsk.
- 5×10 auglýsing. – 87.000 + vsk.
- 3×20 auglýsing. – 105.000 + vsk.
- Hálfsíða auglýsing eða kynning. – 180.000 + vsk.
- Heilsíða auglýsing eða kynning. – 250.000 + vsk.
- Opna auglýsing eða kynning. – 370.000 + vsk. (gæti líka verið auglýsing + kynning, heilsíðu auglýsing og heilsíðu kynning).
- Baksíða.
FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega þegar öll kyn, framlína úr íslensku atvinnulífi koma saman þegar konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. Fylgjumst með hver hlýtur FKA Viðurkenninguna, Þakkarviðurkenninguna og Hvatningarviðurkenninguna.
Sjáumst á Hótel Reykjavík Grand með Ölgerðinni 24. janúar 2024.
#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet #FKAViðurkenningarhátíðin2024 #FKAViðurkenningarhátíð2024 #FKAViðurkenningarhátíð #FKAþakkarviðurkenning #FKAviðurkenningin #FKAhvatningarviðurkenning #HótelReykjavíkGrand #Ölgerðin