Ásta, Guðfinna og Grace Achieng heiðraðar á Viðurkenningarhátíð FKA 2023
Húsfylli og mikill hátíðleiki umlukti Viðurkenningarhátíð FKA þegar Ásta S. Fjeldsted, Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir og Grace Achieng voru heiðraðar á stórglæsilegum viðburði á Hótel Reykjavík Grand.
Ásta S. Fjeldsted hlaut FKA viðurkenningu 2023 sem veitt er fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.
Dr. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir hlaut Þakkarviðurkenningu FKA 2023 sem er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf stjórnanda í atvinnulífinu.
Grace Achieng hlaut Hvatningarviðurkenningu FKA 2023 sem er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði.
Stórglæsileg Viðurkenningarhátíð og FKA Sérblað kom út í tilefni dagsins nálgast má HÉR
#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet #FKAViðurkenningarhátíðin2023 #FKAViðurkenningarhátíð2023 #FKAViðurkenningarhátíð #FKAþakkarviðurkenning #FKAviðurkenningin #FKAhvatningarviðurkenning #Torg #Fréttablaðið #HótelReykjavíkGrand