Kærar þakkir Golfnefndir FKA fyrir frábært mót! / MYNDASYRPA.

Tengslamyndum í FKA fer fram á margvíslegan hátt – líka í golfskóm / MYNDASYRPA.

FKA golfferðir og mót slá ávallt í gegn og ferðir skipulagðar innanlands og utan sem eru ávallt gefandi gæðastundir. Að þessu sinni  styrktum við böndin og myndum ný viðskipta- og vinatengsl á Golfmóti FKA sem fór fram í Leirunni Reykjanesbæ.

Golf í morgunmat, hádegismat og kvöldmat. Mögulega líka með kaffinu.

„Rúmlega þrjátíu konur mættu og skemmtu sér mjög vel saman. Eftir golfið beið fordrykkur og matur auk verðlaunaafhendingar. Veitt voru verðlaun í þremur forgjafaflokkum, nándarverðlaun á öllum par 3 holum og lengsta dræv á 18. braut auk verðlauna fyrir fæst högg,“ segir Guðrún Þorsteinsdóttir stjórnarkona í Golfnefnd FKA sem bætir við að þetta hafi verið sameiginlegur viðburður golfnefnd starfsársins og golfnefndar síðasta starfsárs.“

Veðurfar er hugarfar.

„Veðrið var allskonar en enginn lét það á sig fá,“ segir Guðrún en geggjaður matur frá félagskonunni Höllu í Grindavík fer öllum árstíðum vel og það var allt sem gekk upp og rúmlega það. „Það er fjöldi fyrirtækja sem styrkti með vinningum fordrykk og teiggjöfum og við eru ótrúlega þakklátar fyrir aðkomu þessara aðila“.

Ertu búin að kynna þér hóp sem er opin öllum FKA konum áhugasömum um golf?

Golfnefnd myndaði hópinn FKA golfdrottningar sem má finna HÉR. Hópurinn er opinn öllum FKA konum sem eru áhugasamar um golf þ.e. byrjendum, lengra komnum og einnig þeim sem hefur alltaf langað að byrja en eru ekki komnar af stað. „Vettvangur þar sem konur geta tengst og staður til að veita upplýsingar og þar hristum hópa saman fyrir ferðir og mót,“ segir Helga Björg Steinþórsdóttir stjórnarkona FKA og fyrrum formaður golfnefndar FKA. „Virkilega gaman að sjá konur byrja í golfíþróttinni og það var dásamlegt að sjá hve margar létu vaða í djúpu laugina þegar Golfnefndin byrjaði að laða nýjar konur í sportið sem höfðu nánast ekki snert kylfu en komu með okkur til Ítalíu í golfferð,“ bætir Helga Björg við. „Það sýnir okkur að það er aldrei of seint að byrja og hvar er betra að láta vaða en í öruggum félagsskap FKA umvafinn konum tilbúnum að hjálpa og kenna. Ólafía Þórunn hin eina sanna er í Golfnefndinni og var með uppákomu á níundu holu á þessu móti þið getið ímyndað ykkur hvað þetta er allt hressandi“.

Tengslamyndum í FKA fer fram á margvíslegan hátt og eru hinar árlegu golfferðir FKA mjög góð leið til að efla tengslanetið og hafa ófá vináttu- og viðskiptasambönd myndast í ferðunum. „Þetta er líka metnaðarfullt mót og eitt útilokar ekki annað þ.e. að hafa keppnisskapið með og góða skapið,“ segir Guðrún að lokum og segir stolt frá sínum konum sem mættu á pall og öllum  þeim sem skráðu sig til leiks og hvetur allar FKA konur til að fylgjast vel með ferðinni  golfferðinni í vor sem byrjaðar er að skipuleggja og verða dagsetningar kynntar fljótlega. 

Verðlaunin í forgjafaflokkunum voru eftirfarandi:

Í þriðja forgjafaflokk:

  1. Anna Birgitta Geirfinnsdóttir
  2. Ólöf Guðmundsdóttir
  3. Dagbjört Þórey Ævarsdóttir

Annar forgjafaflokkur:

  1. Karólína Helga Símonardóttir
  2. Þóra Valný Yngvadóttir
  3. Margrét Ingþórsdóttir

Fyrsti forgjafaflokkur:

  1. Guðrún Þorsteinsdóttir
  2. Elna Christel Johansen
  3. Sólveig Guðrún Pétursdóttir

Til kvenna sem langar að byrja í golfi en skorti grunn, þekkingu og tengslanet.

Hlutverk og helstu verkefni Golfnefndarinnar er að stuðla að virku golfstarfi innan félagsins, halda árlegan golfviðburð fyrir FKA golfkonur og leggja áherslu á að fá fleiri byrjendur með í hópinn. Það er því verið að hlúa að reynslumiklum golfurum innan félagsins en líka þeim sem langar að byrja í golfi en skorti grunn, þekkingu og tengslanet. „Markmiðið Golfnefndarinnar síðast var að efla félagskonur í golfinu og leggja sérstaka áherslu á að fá fleiri byrjendur með í hópinn því höfum orðið varar við að flottar konur langaði að byrja í golfi en skorti grunn, þekkingu og tengslanet. Félagskonur áttu fastan hermatíma í Golfsvítunni í Ögurhvarfi einu sinni í viku á síðasta starfsári. Við fengum Karen Sævarsdóttur til að vera með golfkennslu og var hún bæði með einstaklings og hópakennslu fyrir félagskonur, auk þess sem hún setti upp golfskóla í Ítalíuferðinni,“ segir helga Björg stolt frá og að þetta sé frábær leið til að bóka sig og hittast án þess þó að þurfa að mæta með vinkonu eða fylla heilt holl.

Golfnefnd FKA viljum þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrktu með vinningum, fordrykk og teiggjöfum.

Sérstakar þakkir til Golfklúbbs Suðurnesja fyrir rausnarlegar móttökur og frábært samstarf. Golfvöllurinn í toppstandi og þjónustan til fyrirmyndar. 

>> MYNDASYRPA HÉR

Hlökkum til að sjá ykkur aftur!

Golfnefnd 2023-2024 & 2022-2023

Dagbjört Þórey Ævarsdóttir 

Elna Christel Johansen

Elsa Dóra Ísleifsdóttir

Guðrún Þorsteinsdóttir

Katrín Garðarsdóttir

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir

Sigurbjörg Gunnarsdóttir

Golfnefnd 2022-23

Formaður: Helga Björg Steinþórsdóttir

Bára Einarsdóttir

Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir

Guðrún Þorsteinsdóttir

Heiður Björk Friðbjörnsdóttir

Ingibjörg Þorsteinsdóttir

Katrín Garðarsdóttir

Ólöf Guðmundsdóttir

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir