Kæru félagskonur!
Verið velkomnar kæru FKA konur í fyrirtækjaheimsókn í Lindex, Kringlunni!
Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir FKA kona eigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi og félagskona FKA tekur á móti okkur ásamt sínu fólki og býður upp á skemmtilega og glæsilega heimsókn.
Lindex ævintýrið byrjaði við stofuborðið heima hjá Lóu í Svíþjóð. Nú 13 árum síðar, eru Lindex verslanirnar á Íslandi orðnar 10 talsins og nýlega var umfangið á fatamarkaðnum á Íslandi stækkað með opnun 3 Gina Tricot verslana sem slegið hafa í gegn. Lóa mun segja okkur sögu Lindex og fylla okkur af hvatningu og krafti. Olga Einarsdóttir stílisti verður á staðnum og segir okkur frá fríu stílistaráðgjöfinni. Þá verður lukkuhjól, 20% afsláttur af öllum vörum fyrir FKA konur og léttar veitingar í boði.
Ekki missa af gæðastund þar sem hittumst og njótum saman, styrkjum tengslanetið og fyllumst krafti í fallegu umhverfi Lindex Kringlunni þann 21. mars kl. 19:00-21:00.
Léttar veitingar!
HVAÐ: Fyrirtækjaheimsókn til Lóu í Lindex
HVAR: Lindex, Kringlunni.
HVENÆR: Fimmtudaginn 21. mars 2024
KLUKKAN: 19:00-21:00.
*MYND: Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir FKA kona
Kær kveðja!
//
Viðskiptanefnd 2023-24
Jessi Kingan
Claudia Ashanie Wilson
Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir
Hanna Guðfinna Benediktsdóttir