Kæra félagskona!
Ef þú verður með á aðalfundinum á Zoom biðjum við þig um að skrá þig fyrirfram og tryggja þannig að allt virki, Hvetjum þig að fara yfir tækjakost og tengingar fyrr um daginn svo það gangi sem best að mæta á fundinn sem hefst stundvíslega kl. 17 raun og raf – hér er hlekkur á fundinn:
https://us02web.zoom.us/webinar/register/WN_REkYN0V6QfeqMnFLtykwQg
Að skráningu lokinni færðu sendan tölvupóst með staðfestingu sem inniheldur innskráningarupplýsingar.
Minnum við á að hafa rafrænu skilríkin klár fyrir fundinn og huga s.s. að því að vera með hlaðinn síma/iPad við höndina og í netsambandi þegar kosið er á aðalfundinum sjálfum m.a. kosið um lagabreytingar, skoðunarmann, fundarstjóra o.fl.
Allar nánari upplýsingar má finna hjá Kjörstjórn FKA 2024.
HVAÐ: Aðalfundur FKA
HVENÆR: 15. maí 2024
KLUKKAN HVAÐ: 17.00-18.00
HVAR: Hús atvinnulífsins Borgartúni 35, 105 Reykjavík HÉR & Zoom. Sonik tækni ehf sér um streymi frá aðalfundi á Zoom.
HVERNIG: Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og skal hann haldinn fyrir lok maí ár hvert samkvæmt lögum félagsins sem má nálgast HÉR.
Léttar veitingar í lok fundar til kl. 19.00.
Dagskrá fundarins HÉR //
Kær kveðja!
Stjórn FKA 2023-2024
#FKA #FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet #AðalfundurFKA2024